29.10.06
Samviskubit
Ég fæ bara samviskubit.
Mér finnst að heimanám ætti að vera afnumið.
28.8.06
All right
Ég verð í skólanum til 2-3 alla daga, en svo er ekkert sem ég þarf að gera.
Ég nenni ekki að byrja að vinna.
Ég hef ekki unnið alvöru vinnu á æfinni.
Ég ætla bara að horfa á sjónvarpið.
Ég vildi óska að það væri hægt að fá borgað fyrir það.
Ef það er hægt þá máttu láta mig vita.
Þetta verður alltílagi vetur.
13.7.06
Mixtape...
Doddinn - Summer's Up Again
http://www.rokk.is/mp3/doddinn/doddinn_summers_up_again.mp3
Fighting Shit - Fuck You
http://www.rokk.is/mp3/fighting_shit/fighting_shit_fuck_you.mp3
Bertel - Hún sá mig aftur
http://www.rokk.is/mp3/b/bertel_hun_sa_mig_aftur.mp3
Hr.Möller Hr.Möller - Þriðjudags-Blackout
http://www.rokk.is/mp3/h/herramollerherramoller_thridjudags-blackout.mp3
Furstaskyttan - Hvorfor går solen ikke ned?
http://www.rokk.is/mp3/f/furstaskyttan_hvorfor_gar_solen_ikke_ned.mp3
The Oak Society - I Once Ate Detergent
http://www.rokk.is/mp3/t/the_oak_society_i_once_ate_detergent.mp3
We Painted The Walls - My Fisher Friend Bobby
http://www.rokk.is/mp3/w/we_painted_the_walls_my_fisher_friend_bobby_(lifandi_a_musiktilraunum).mp3
Morðingjarnir - Ætlarðu ekki með?
http://www.rokk.is/mp3/m/mordingjarnir_aetlardu_ekki_med.mp3
Skátar - Halldór Ásgrímsson
http://www.rokk.is/mp3/s/skatar_halldor_asgrimsson.mp3
Rökkurró - Stef
http://www.rokk.is/mp3/r/rokkurro_stef.mp3
Gavin Portland - This Ain't The Dakota
http://www.rokk.is/mp3/g/gavin_portland_this_aint_the_dakota.mp3
Benny Crespo's Gang - The Rising
http://www.rokk.is/mp3/b/benny_crespos_gang_the_rising.mp3
Seabear - Drunk Song
http://www.rokk.is/mp3/s/seabear_drunk_song.mp3
Dys - Elskan ég er anarkisti
http://www.rokk.is/mp3/d/dys_elskan_eg_er_anarkisti.mp3
Malneirophrenia - Lag úr ímyndaðri hryllingsmynd
http://www.rokk.is/mp3/m/malneirophrenia_lag_ur_imyndadri_hryllingsmynd.mp3
Big Kahuna - I Don't Like Lines
http://www.rokk.is/mp3/b/big_kahuna_i_dont_like_lines.mp3
UMTB Stefán - Electronic
http://www.rokk.is/mp3/u/ultra_mega_technobandid_stefan_electronic.mp3
Innvortis - Andrea
http://www.rokk.is/mp3/innvortis/innvortis_andrea.mp3
Þórir - Canada oh Canada
http://www.rokk.is/mp3/th/thorir_canada_oh_canada_(version_ii).mp3
Ókind - Þoturass
http://www.rokk.is/mp3/o/okind_thoturass.mp3
I adapt - I Wish
http://www.rokk.is/mp3/iadapt/iadapt_iwish.mp3
Jei!
3.7.06
The Neighbours...
lagið á rokk.is: I Wanna Move To Tokyo
myspace-ið okkar: The Neighbours
17.5.06
Lög fyrir þig að hlusta á
Jack Johnson - Banana Pancakes
Allur diskurinn
Dead Kennedys - Police Truck (úr Tony Hawk 1)
Lay Low (Lovísa) - Please Don't Hate Me + Mojo Love
Bright Eyes - Road To Joy
Defiance, Ohio - This Time, This Year
The Blood Brothers - Burn Piano Island
31.3.06
Sorry
if you wasted important things on me
I'm really sorry
If I don't understand how you feel
I'm so, so sorry
Sorry for the way you feel
Sorry it's not a big deal
Sorry if I'm wrong
Sorry that you're gone
I'm really sorry
If things wont work out
I'm really sorry
If I'm a sound to loud
I'm so, so sorry
26.3.06
Scum of the earth...
Ég var að keppa gegn Njarðvík í Reykjaneshöllini áðan og þar komu fyrir hinar ýmsu fígúrur sem ég hélt að væru ekki til.
Fyrst var það rasistinn sem að lét útúr sér: "Farðu heim til þín, Tælendingurinn þinn" við liðsfélaga minn. Okei, hann sagði þetta í hita leiksins og okkar lið missti sig náttúrulega og nokkrir ætluðu að vaða í þennan gaur. Svo var það maðurinn sem stal showinu, lögreglumaðurinn meðal áhorfenda sem kom og reyndi að skarast í leikinn. Það endaði með því að rasistanum var skipt útaf fyrir annan leikmann á meðan markverðinum okkar var vísað af velli. Á endanum kom löggan og sagði markverðinum okkar að hann mætti ekki vera í húsinu. Ég talaði á rólegu nótunum við lögguna og hann sagði: "já þú veist nú ekkert hvað kynþátta misrétti er. Hvaðan er þessi strákur, er hann ekki frá Asíu? já þá er þetta ekki rasismi"
Mér blöskraði, ég lét nú reyndar útúr mér nokkur vel valinn blótsyrði um fávisku þessa manns. Seinna kom svo í ljós að þessi lögga var pabbi rasistans í Njarðvík, ekki í starfsliði Njarðvíkur né KSÍ en virtist samt hafa réttinn til að reka menn útúr almennings byggingum. Ég veit nú ekki til þess að hann hafi verið á vakt. Jafnvel að maðurinn hafi ekki verið lögga, kannski er konan hans lögga og hann fékk bara lánaða flíspeysuna hennar. Svo var maður á hækjum sem virtist ágætur, hrósaði okkar mönnum sem áttu það skilið og var ekkert að verja rasismann hjá Njarðvíkingum.
Svo spjallaði ég við þjálfarann sem virtist bæði ágætur og algjörlega tómur í hausnum. Hann sagði að við þyrftum bara að taka á þessum rasisma sjálfir, en tók þó sökina á sitt lið að örlitlu leyti.
Við höfum nú náð okkur í óvini víðsvegar um landið, Njarðvík, Grindavík, Garðabær og Vestmannaeyjar. Við spilum aftur við 3 af þessum liðum í sumar. Það ætti að verða fjör.
Rasistar eru drasl.
21.3.06
Hef aldrei skilið þennan texta...
...fyrr en núna
I backed my car into a cop car the other day
Well he just drove off sometimes life's ok
I ran my mouth off a bit too much oh what can i say
Well you just laughed it off it was all ok
And we'll all float on ok
And we'll all float on ok
And we'll all float on ok
And we'll all float on any way well
Well, a fake Jamaican took every last dime with a scam
It was worth it just to learn from sleight-of-hand
Bad news comes don't you worry even when it lands
Good news will work its way to all them plans
We both got fired on the exactly the same day
Well we'll float on good news is on the way
Ég vildi að hlutirnir væru svona auðveldir...
Poor old me...
11.3.06
I wish...
Ég keypti svo hlutabréf í fyrirtæki sem mér var bent á að mundi hækka gríðarlega í verði á fáeinum dögum og viti menn, nú á ég 24,5 milljónir.
Ég er hættur í skóla og er búinn að kaupa íbúð á Spáni. Ég mun chilla þar í nokkra mánuði og finna mér svo einhverja vinnu þar.
I wish...
8.2.06
What the fuck are you fighting for?
Það var ráðist á mig, en ég lamdi hann.
Má það?
Ég lenti einu sinni í nauðgun, það var ekki mér að kenna...
Það var ráðist á mig, en ég nauðgaði honum.
Má það?
What?
24.1.06
17.12.05
Jólalag...
Screaming and crying
fighting and lying
I guess we can't avoid it
and i hate it, i admit
Yes, it's clear
my biggest fear
yes, it's here
Christmas is early this year
Bare knuckle fighting
kicking, shouting and biting
the birth of our saviour
and rather distourbing behaviour
Taking it with ease
we're making peace
the way it should be
tonight on christmas eve
yes, it's clear
christmas is here
10.12.05
Slæm ákvörðun
Ég opna ísskápinn.
Þar blasir við mér jólabjór og rauður magic.
Mig langar í bæði.
Ég fæ mér magic.
Samt er ég ekki að fara að læra.
Nú get ég ekki sofnað.
Slæm ákvörðun.
Villi þú ert svo vitlaus.
27.11.05
School's killing my rock and roll
Skólinn er ekki að gera sig þessa daganna, þess vegna eru jólaprófin kærkomin ásamt jólafríinu. Ég held þó ekkert sérstaklega uppá prófin en þau eru skárri en þessi ansvítans prísund sem við kjósum að kalla skóla.
Í prófunum getur maður lært eftir því hvernig liggur á manni og uppsker svosem eftir því. Þá hefur maður líka tíma til þess að gera aðra hluti samhliða lærdómnum, eins og t.d. að blogga sem ég spái að verði mun meira um hjá flestum bloggurum landsins. Maður verður reyndar sjúklega anti-social í prófunum en það er svosem fínt svona fyrir jólafríið.
Talandi um fríið... það verður frí hjá mér, ég ætla sko ekki að fara að vinna eins og einhver tík. Ég ætla að vaka til 4 á nóttunni og vakna kl. 3 næsta dag. Ég ætla hanga inni sólarhringum saman og ekki eiga samskipti við annað fólk svo dögum skiptir. Inná milli mun ég svo eiga of mikil samskipti við fólk. T.d. öll jólaboðin og áramótin. Of miklir kossar fyrir mig.
Svo mun ég líka horfa á Tommy Boy
15.11.05
Ég hef ekki hugmynd...
Margir þróa einhvern hæfileika á uppvaxtarárum sínum, hæfileikinn verður seinna hluti af starfi þess einstaklings og uppspretta fjármuna í lífi hans.
Ég veit um tölvunörda sem kláruðu menntaskóla og einhverja háskólakúrsa og fóru svo bara að forrita fyrir stórfyrirtæki og fá dágóð laun. Þar með hafa þeir möguleika á að lifa af eigin peningum en ekki alltaf hótel mömmu. Þeir sem hafa hæfileika í tónlist eiga alltaf þann möguleika að nýta hann sem atvinnuveg. Sömuleiðis þeir sem hafa hæfileika í íþróttum eða myndlist o.s.fr.
En fyrir fólk eins og mig? Average Joe? Ég hef enga hæfileika en get þó gert ýmislegt. Ég get spilað fótbolta en það mun ekki vera atvinna mín. Ég get fiktað í tölvum en það eru til kvenkyns dvergar sem eru hæfari en ég í svoleiðis starfi. Ég get glamrað á gítar en guð forði ykkur frá því að það verði atvinna min. Ég get svosem teiknað en hversu langt ferðu á því á Íslandi? Og þar að auki væri ég ekki nógu þolinmóður.
Hvað í fjandanum verður um fólk eins og mig? Verðum við föst í einhverjum afgreiðslu og skrifstofustörfum sem eru vanþakklát og leiðinleg? Kannski reddast þetta bara ef maður er ekkert að pæla í þessu. Ég vona það allavega.
Ég var samt að pæla í að fara í bæjarstjóraframboð árið 2010. 22 ára bæjarstjóri? Það væri sweet job.
12.11.05
Pizzupöntun 101
En algjörlega þess virði.
Vonandi lærðiru eitthvað af þessu.
P.s.
Af hverju hækkuðu þeir pizzurnar um 90kr. á megavikunni? Frekar lummó.
10.11.05
Gullna reglan
"Það sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Nema hommar og masókistar."
9.11.05
Hér með er blogspot síðan mín búin að líta dagsins ljós
Ég er ekkert að fara að leggja niður hina síðuna mína (www.le-villain.tk)... þessi verður bara með öðru sniði. Þú mátt búast við að lesa hérna lífsreynslu sögur og hugsanir mínar sem þú hefur hvorki löngun né gott af því að heyra. Þú getur búist við one-linerum eða heilli ritgerð... það er aldrei að vita.
Hér mun ég leyfa mér að setja jafnt grunnhyggnar sem djúpar pælingar, en mér finnst ég ekki hafa svigrúm til þess á blog.central, þar er í raun einungis hægt að segja frá hversdagslegum hlutum og svoleiðis.
Ég ætla ekki að hafa linka á þessari síðu og ætlast ekki heldur til þess af öðrum að vera eitthvað að linka á mig, mér er sama þó enginn kommenti en býð þó upp á þann valmöguleika. Mér er eiginlega líka sama hvort einhver lesi þetta, svo lengi sem ég get drullað hlutum sem þjaka mig útúr höfðinu/hjartanu mínu og á blað/internet síðu.
Ég held að þetta sé í raun það sama og drengur sem ég þekki gerði undir dulnefninu Mr.Jones, mér fannst það alltaf svo skemmtileg lesning. Ef ég gæti fetað í fótspor hans þá væri það sannur heiður.
